| 24.02.08 10 ævintýrasögur af Óskarsstyttum! Óskarsverðlaunahátíðin hefur alltaf verið mjög "commercial" og hika aðstandendur hennar ekki við að líta niður á óviðeigandi hegðun. Þeir vilja eindregið að fólk beri ótakmarkaða virðingu fyrir glæsilegu verðlaunagripunum sem hafa einkennt hátíðina í gegnum árin, en þetta breytir því ekki að það eru til ótrúlegar sögur af sumum óskurum og hvar þeir hafa lent! Síðan 1950 hefur verið gildandi samningur við vinningshafa sem gerir þeim ekki kleyft að selja Óskarana sína á uppboðum eða einhverju þess háttar. 10. Óskarinn hans Isaac Hayes fyrir hlutverk hans í Shaft er staðsettur við inngang veitingastaðar hans í Memphis sem ber nafnið "Music, Food and Passion" 9.Shelley Winters fékk óskarinn fyrir hlutverk sitt í The Diary of Anne Frank árið 1959 og gaf hann til Anne Frank House safnsins í Amsterdam. 8.Eftir að Jimmy Stewart vann óskarinn fyrir Philadelphia Story árið 1940 þá gaf hann föður sínum styttuna sem sýndi hana stoltur í búðarglugganum sínum í langt í 20 ár. 7. William Hurt fékk óskarinn sem besti aðalleikari fyrir hlutverk sitt í Kiss of the Spider Woman árið 1985. Þegar leikarinn var að flytja árið 2006 þá tók einn þeirra sem hjálpaði honum að flytja á sprettinn með styttuna og tókst að komast í burtu með hana. Styttan fannst þó í skurði meðfram þjóðveginum nokkrum dögum síðar og var skilað til leikarans en þjófurinn fannst þó aldrei. 6.Nestor Almendros var tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir myndina Days of Heaven en missti næstum því af hátíðinni! Hans besti vinur tókst að koma honum í bílinn og á leiðarenda á lokaandartökum tilnefninganna og kom Nestor því hlaupandi uppá sviðið til að taka á móti verðlaununum. Hann stóð í algerri þakkarskuld við vin sinn, Scotty Bowers, og gaf honum styttuna árið 1992 rétt áður en Nestor dó úr alnæmi. Scotty er nú þekktur í Hollywood fyrir að vera óragur við að taka óskarinn með í veislur og partý, enda starfar hann sem þjónn. 5. Óskarsstyttan hans Clark Gable frá árinu 1934 sem hann fékk fyrir myndina It Happened one Night var seldur á uppboði árið 1996. Það fylgir sögunni að kaupandinn hafi verið enginn annar en Steven Spielberg sem keypti hann á 607.500 dollara! Hann gaf styttuna til Óskarsverðlaunaakademíunnar. 4.Sviðsstjórinn F.Keogh Gleason vann hjá MGM í hátt í 40 ár og vann 4 óskara. Þegar 3 óskaranna komu upp á yfirborðið hjá veðbókara í Hollywood þá varð hann ekki sáttur. Seinna kom í ljós að sonur hans hafði lent í peningavandræðum og ákvað að veðsetja þá, en náði þó að endurheimta þá úr helju eftir einhvern tíma. 3.Whoopi Goldberg fékk óskarinn fyrir hlutverk sitt í Ghost. Styttan var send í hreinsun af fyrirtækinu sem framleiðir stytturnar en týndist í sendingunni! Týnda styttan fannst loksins í ruslagámi á flugvelli í Kaliforníu."Ég ætla aldrei að fara með styttuna úr húsi eftir þetta" sagði Goldberg. 2.Barnastjörnurnar Shirley Temple og Margaret O'Brien fengu báðar "mini" óskarsstyttur í flokknum "Bestu barnastjörnurnar". Næsta dag þegar heim var komið var ráðskonan á heimilinu flúin - með styttuna! 10 árum síðar fengu þær stöllurnar nýjar styttur en sú upprunalega sneri uppá yfirborðið næstum því 40 árum síðar á háskólalóð í Pasadena og var skilað til O'Brien. 1.Alice Brady vann óskarinn sem besta aukaleikkona árið 1938 fyrir hlutverk sitt In Old Chicago en var of veik til að mæta á hátíðina. Maður í hennar nafni stökk þá upp á svið þegar hún var tilkynnt sem sigurvegari og tók á móti verðlaununum. Seinna kom þó í ljós að Alice þekkti þennan mann nákvæmlega ekki neitt og óskarinn hefur enn ekki fundist! Hún lést úr krabbameini áður en hægt var að gera nýjan óskar sem hún átti að eiga! |